Hlaðborð.is
Síðast uppfært 7. október 2026

Vafrakökur

Hlaðborð.is notar aðeins þær vafrakökur sem þarf til að vefurinn virki. Kort frá Google birtast aðeins ef þú biður um þau.

Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vefurinn vistar í vafranum þínum. Þær sem við notum eru nauðsynlegar til að veita þjónustuna sem þú biður um og því þarf ekki sérstakt samþykki fyrir þeim.

HeitiTilgangurGildistími
hb_sessionHeldur þér innskráðum. Óaðgengileg forskriftum á síðunni.30 dagar
hb_valdirMan hvaða staði þú hefur valið í fyrirspurn.30 dagar
hb_leitMan síðustu leit, þ.e. fjölda gesta, dagsetningu og tíma, svo þú þurfir ekki að slá hana inn aftur.30 dagar

Vistaðir staðir

Staðir sem þú vistar með hjartanu eru geymdir í staðbundinni geymslu vafrans (hb_vistad). Þeir berast okkur aldrei og hverfa ef þú hreinsar gögn vafrans.

Kort frá Google

Kort á síðum staða og leit að heimilisfangi koma frá Google Maps. Á síðum staða er ekkert sótt frá Google fyrr en þú ýtir á „Sýna kort“. Þegar veitingastaður skráir eða breytir stað hleðst leitin og kortið frá Google strax. Google getur sett eigin vafrakökur, samkvæmt persónuverndarstefnu Google. Við munum valið þitt í staðbundinni geymslu vafrans (hb_kort) svo þú þurfir ekki að velja aftur, og þú getur hætt við hér:

Auglýsingar og vefgreining

Við teljum birtingar og smelli á auglýsingar án vafrakaka. Heimsóknir eru taldar með Vercel Web Analytics, sem notar heldur engar vafrakökur.

Að stjórna vafrakökum

Þú getur eytt vafrakökum eða lokað á þær í stillingum vafrans. Ef þú lokar á þær getur þú ekki skráð þig inn og vefurinn man ekki leitina þína.

Nánar um meðferð persónuupplýsinga í persónuverndarstefnu.